Baðstofukvöld með tónlist og ljóðalestri - Ástar fjármögnun

Baðstofukvöld með tónlist og ljóðalestri - Ástar fjármögnun

Laugarnesvegur 104, 105 Reykjavíkurborg, Ísland, Laugarnesvegur 104, 105 Reykjavík Directions

Thu 27.08.2026 20:00

Baðstofukvöld með tónlist og ljóðalestri.

Við fengum ekki listamannalaun fyrir óperuverkinu okkar Ástin ein taugahrúga, enginn dans við Ufsaklett. Sjokker!!! Svo...hvað gera listakonur þá??

Okkur langar ekki lengur að selja varning, við eigum öll nóg af pokum, derhúfum og bolum, þó það sé vissulega gaman að eiga slíkt. En í þetta sinn langar okkur að fjármagna listsköpun með annarri list sem við getum öll notið saman í persónu.

Svo þessar tilteknu listakonur fá vini sína til að koma og flytja tónlist, ljóð, lesa upp úr smásögu safni, vera með grín og glens og fleiranog fleira sem listahjartað kallar eftir, í stofunni heima!

Nánar tiltekið: Á Laugarnesvegi 104, annarri hæð til vinstri!

Fram kemur úrval listamanna og boðið verður upp á kaffi kleinur í huggulegri nánd stofunnar á Laugarnesvegi 104, 2. hæð til vinstri.

Þrjú miðaverð verða í boði - 1500 kr, 2500 kr og 4500 kr - en einnig verður opið fyrir frjáls framlög.

Við erum á lokametrunum við að ná að klára að fjármagna sýninguna og allur ágóðinn sem safnast fer beint í framleiðslukostnað á óperunni Ástin ein taugahrúga- enginn dans við Ufsaklett eftir Önnu Halldórsdóttur og Elísabetu Jökuls, sem frumsýnd verður í Tjarnarbíói 19. september.

Hægt verður að greiða með reiðufé eða millifærslu á reikning Spindrift:

Reikningsnúmer: 0537-14-408506

Kennitala: 650117-0260

#íslandsbanki

Sætapláss er AFAR takmarkað en takið frá miða með því að senda tölvupóst á spindrifttheatre@gmail.com og tiltakið þar nafn og hversu marga miða þið viljið <3

Fram koma:

Unnur Elísabet Gunnarsdóttir, Anna Halldórsdóttir, Sólveig Magnúsdóttir, Bergljót Arnalds, Tinna Þorvalds Önnudóttir, Bergdís Júlía Jóhannsdóttir, Arnar Hauksson, Þorvaldur Þorvaldsson og Jón Páll Helgason

Verið hjartanlega velkomin í kaffi kósý, heimabakaðar kleinur og heimabakaða list!

Einnig: Ef einhver á eftir að panta miða á sýninguna í Tjarnarbíói, Ástin ein taugahrúga - enginn dans við Ufsaklett, þá má finna þá hér!

https://tix.is/en/event/21143%2Fastin-ein-taugahruga-enginn-dans-vid-ufsaklett

Performers