#BeActive Pílumót Smárans 🎯

#BeActive Pílumót Smárans 🎯

Hjalteyri, Þelamerkurskóli, 601 Akureyri Directions

Fri Sep 25 2026 18:00

Komdu og taktu þátt í skemmtilegu og óformlegu pílumóti í tilefni af Íþróttaviku Evrópu!

Keppt verður í 301 og boðið verður upp á tvo flokka:

🎯 Meira vanir – Double Out

🎯 Minna vanir – Single Out

8 keppendur í hvorum flokki – alls 16 keppendur.

Mótið hefst með útsláttarkeppni þar sem keppendur dragast saman og mætast einn og einn. Sá sem sigrar heldur áfram í næstu umferð þar til tveir keppendur standa eftir og mætast í úrslitaleik.

Keppnisfyrirkomulag:

8 manna úrslit → undanúrslit → úrslit

Markmiðið er fyrst og fremst að hafa gaman, hreyfa sig og eiga góða stund saman. Allir eru velkomnir að taka þátt, hvort sem þú ert vanur pílukastari eða ert að prófa þetta í fyrsta sinn.

📅 25. september

⏰ Kl. 18:00

📍 Íþróttamiðstöðin á Þelamörk

💰 Þátttaka er gjaldfrjáls

Skráning er takmörkuð við 8 keppendur í hvorum flokki.

Skráning hefst föstudaginn 11. september, þá kemur inn skráningarskjal hér.

#BeActive #ÍþróttavikaEvrópu #Hörgársveit #UMFSmárinn