Beaujolais Nouveau á Vínstúkunni
Vínstúkan Tíu Sopar, Laugavegur 27, 101 Reykjavík Directions
Thu Nov 19 2026 16:00
Le Beaujolais nouveau est arrivé!
Þá er loksins komið að því, eina ferðina enn.
Þriðja fimmtudag í Nóvember fáum við í hendurnar splúnkunýjan árgang af Beaujolais Nouveau og því ætlum við að slá til veislu á Vínstúkunni. Á sama tíma um heim allan fá vínbúðir, veitingahús og barir fyrsta vínið sem tilbúið er úr uppskeru ársins 2026, og er það drukkið í kassavís af sælkerum!
Í fyrsta sinn verðum við með vín frá Domaine des Grottes, en vínið er algjör nýjung í Beaujolais á Íslandi og ætlum við að bjóða uppá 2026 árganginn. Við bjóðum einnig upp á Beaujolais sem er 2-3 árganga aftur í tímann auk annara vína.
• Í tilefni dagsins verður heimatilbúin sveitapylsa og linsur á seðlinum
• Takmarkað upplag af Beaujolais x Vínstúkan bolum verður í boði
• DJ Ívar Pétur leiðir okkur inn í nóttina með hverjum slagaranum á fætur öðrum
Við hvetjum þig til að bóka borð í partýið þar sem færri hafa komist að en vildu síðustu ár, en Beaujolais Nouveau dagurinn hefur rækilega fest sig í sessi sem skemmtilegasti dagur ársins á Vínstúku allra landsmanna!
Komið fagnandi!
Bóka borð:
https://www.dineout.is/vinstukan?isolation=true