Bergminni - Opnun myndlistarsýningar Óskar Gunnlaugsdóttur

Bergminni - Opnun myndlistarsýningar Óskar Gunnlaugsdóttur

Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Directions

Sat Nov 28 2026 14:00

Í sýningunni Bergminni – lög úr landslagi rannsakar Ósk samspil landslags, minnis og sögu í málverkum sem eiga uppsprettu sína í klettamyndunum í Almannagjá og við Drekkingarhyl á Þingvöllum. Form og áferð bergsins verða kveikja að ljóðrænni rannsókn á lögum tímans, þar sem jarðsaga og mannleg saga fléttast saman og sögur kvenna, sem hafa fallið í skugga hinnar opinberu

frásagnar, fá rými. Sýningin býður áhorfendum að líta landslagið nýjum augum og íhuga minnið sem það ber með sér.

Ósk Gunnlaugsdóttir (f. 1979) er myndlistarkona búsett í Reykjavík. Hún lauk BA-prófi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2019 og vinnur með málverk og aðra miðla þar sem náttúra, efniskennd og mannleg reynsla mætast.