Bíódagar - Bíótekið!

Bíódagar - Bíótekið!

Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík Directions

Sun 13.09.2026 17:00

Árið er 1964 og Tómas, tíu ára drengur í Reykjavík, sér heiminn í gegnum kvikmyndirnar sem hann elskar. Kúrekar, hetjur og ævintýri hvíta tjaldsins blandast hversdagslífinu og verða leið fyrir lítinn strák til að skilja undarlegan heim fullorðna fólksins. Þegar drengurinn er sendur í sveit yfir sumartímann mætast kvikmyndafantasían og íslenskur veruleiki með áhrifamiklum hætti.

Bíódagar er hlý og nostalgísk uppvaxtarsaga í leikstjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar sem hlotið hefur fjöldamörg verðlaun.

Hún dregur upp lifandi mynd af liðnum tíma, þar sem bíóferðir voru stórviðburður og gamlar hefðir tókust á við nýja tíma, sjónvarp og amerísk menningaráhrif.

*Sérstakur viðburður

Sýnd í Bíótekinu, sunnudaginn 13. september kl 17:00!

Performers

  • Félagsfræðingafélag Íslands
    Félagsfræðingafélag Íslands

    Félagsfræðingafélag Íslands var stofnað 30. nóvember 1995. Tilgangur félagsins er að efla fræðilega umræðu meðal félagsmanna og áhugafólks um félagsfræði

  • Bíótekið
    Bíótekið

    Kvikmyndasafn Íslands hefur stofnað Bíótekið og mun vera með reglulegar kvikmyndasýningar í samstarfi við Bíó Paradís. Nánari upplýsingar um dagskrá og viðburði er að finna hér undir ,,events" og á Kvikmyndasafn.is og bioparadis.is.

  • Kvikmyndasafn Íslands
    Kvikmyndasafn Íslands

    Kvikmyndasafn Íslands safnar, varðveitir og miðlar íslenskum kvikmyndum.