Björgvin - minningartónleikar

Björgvin - minningartónleikar

Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions

Sat 28.11.2026 20:00

Björgvin Halldórsson - maður sviðs og söngva

28. NÓVEMBER KL. 16 - UPPSELT
28. NÓVEMBER KL. 20 - UPPSELT
29. NÓVEMBER KL. 20 - NÝIR AUKATÓNLEIKAR

“Sumir hverfa fljótt úr heimi hér, skrítið stundum hvernig lífið er.
Eftir sitja margar minningar, þakklæti og trú.”

Björgvin Halldórsson var maður sviðs og söngva. Hann er goðsögn í íslensku tónlistarlífi. Laugardaginn 28. nóvember hittumst við í Eldborg og heiðrum minningu hans.

Björgvin gerði tónlistina að ævistarfi og eftir hann liggja margar helstu perlur íslenskrar dægurtónlistar. Sjálfur hafði hann í huga að halda upp á 75 ára afmæli sitt með heiðurstónleikum og var undirbúningur hafinn þegar hann lést skyndilega þann 9. apríl síðastliðinn. Í samráði við fjölskyldu Björgvins var tekin sú ákvörðun að halda áfram með hugmyndir sem þegar voru komnar fram. Eldborg var bókuð og Björgvin var sjálfur búinn að velja mynd í plakatið og langt kominn með val á lögum og söngvurum.

Björgvin hugsaði stórt og verður því allt lagt í sölurnar að gera glæsilega tónleika í minningu hans. Við vitum jú öll hver hann var!

Svala Bjōrgvins vinnur nú að endurgerð af laginu Skýið, sem faðir hennar Björgvin samdi árið 1978 og kom út á plötunni Ég skal syngja fyrir þig. Allir Íslendingar þekkja þetta lag og Svala flutti það svo eftirminnilega í jarðarför föður síns. Skýið með Svölu kemur út föstudaginn 12. júní.

Svala og Krummi Björgvinsbörn leiða landslið íslenskra tónlistarmanna á svið Eldborgar og í sameiningu flytja þau okkur tónlistina sem Björgvin gaf okkur síðastliðna áratugi.

Ógleymanlegt kvöld í vændum þar sem Vetrarsól brýst í gegnum Skýið og okkar Eina ósk er að Riddari götunnar og Gullvagninn rati rétta leið. Björgvin, við Syngjum fyrir þig og Þó líði ár og öld mun Minning þín lifa.

Athugið: Að gefnu tilefni skal tekið fram að ekki er fyrirhugað að streyma tónleikunum.

GESTGJAFAR:
Svala
Krummi

SÖNGVARAR:
Ásgeir Trausti
Eyjólfur Kristjánsson
GDRN
Helgi Björnsson
Mugison
Ragnheiður Gröndal
Sigga Beinteins
Sigríður Thorlacius
Stefán Hilmarsson

SÉRSTAKUR GESTUR:
Ari Eldjárn

LEYNIGESTIR:
???

HLJÓMSVEIT:
Þórir Úlfarsson - Hljómborð, hljómsveitarstjórn, útsetningar
Bjarni Sigurðarson - Gítar
Einar Scheving - Slagverk
Gunnlaugur Briem - Trommur
Jón Elvar Hafsteinsson - Gítar
Ómar Guðjónsson - Pedal Steel
Óttar Sæmundsen - Bassi
Phillip Joseph Doyle - Sax
Tómas Jónsson - Hljómborð

BAKRADDIR:
Andrea Ingvarsdóttir
Kristján Gíslason
Íris Lind

KÓR:
Karlakórinn Fóstbræður

LEIKSTJÓRN:
Gunnar Helgason

MIÐAVERÐ:
Gull:  21.990  (gulgrænt á mynd)
Úrvals: 19.990  (fjólublátt á mynd)
A sæti: 17.990  (rautt á mynd)
B sæti: 15.990  (blátt á mynd)
C sæti: 13.990 (grænt á mynd)
D sæti: 11.990  (gult á mynd)
E sæti:   8.990 (bleikt á mynd)

Mynd af sal hér

Umsjón: Sena Live

Performers

  • Svala
    Svala

    Icelandic singer and songwriter. Signed to Alda Music. Check out my Svala artist Spotify account!

  • KRUMMI
    KRUMMI

    Performer in the tribute event

  • Ásgeir in Mengi
    Ásgeir in Mengi

    Practitioner and teacher of the Hawaiian healing art of Lomi Lomi Nui.

  • Eyfi
    Eyfi

    Performer of popular songs

  • GDRN
    GDRN

    A music group from Iceland.

  • Mugison
    Mugison

    Solo artist performing in churches

  • RAGGA GRÖNDAL
    RAGGA GRÖNDAL

    Performer at Reykjavík Folk Festival

  • Sigga Beinteins
    Sigga Beinteins

    A performer joining the music group for the event.

  • Sigríður Thorlacius
    Sigríður Thorlacius

    Sigríður Thorlacius is a singer and musician known for her Christmas music performances.

  • Stefán Hilmars
    Stefán Hilmars

    Part of the concert series celebrating 15 years of Af fingrum fram.

  • Ari Eldjárn
    Ari Eldjárn

    Ari Eldjárn is one of the most popular stand-up comedians in Iceland, known for his unique comedic style.

  • Fostbraedur Men's choir - Nordurljos Hall
    Fostbraedur Men's choir - Nordurljos Hall

    Guest choir participating in the concert.