Blakkát - Hótel Framtíð
Hotel Framtíð, Vogaland 4, 765 Djúpivogur Directions
Fri Oct 23 2026 20:00
"Guð minn góður! Hvað er ég að gera á hótelherbergi? Ég var á árshátíð, er það ekki? Hann hefur bara heillast af kynþokkanum. Verð ég ekki að hringja í ráðuneytisstjórann og útskýra? Eða ekki… Best að panta sér einn LÍTINN bjór. Taka úr sér mesta hrollinn".
Bokka er ákaflega ungleg, rétt rúmlega fertug kona á besta aldri sem á það til í að lenda í vandræðum af því að það er til svo mikið af fávitum. Þegar við hittum á hana Bokku er hún nýkrýnd drykkjudrottning Íslands og hefur unnið sér inn óminnisferð til Hveragerðis ásamt ýmsum aukavinningum.
Blakkát eftir Björk Jakobsdóttur er farsakennt leikrit um alkóhólisma, minnisleysi, mannlegan breyskleika og markaleysi. Hvað er ekki fyndið við það?
Sýningin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára. Ungmenni á aldrinum 16-18 ára þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.