Bleik messa - sr. Jóna Hrönn deilir reynslu sinni
Vídalínskirkja, Kirkjulundur 3, 210 Garðabær Directions
Sun Oct 25 2026 11:00
Sunnudaginn 25. október klukkan 11:00 verður Bleik messa í Vídalínskirkju. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir flytur hugleiðingu út frá því sem hún hefur lært af því að greinast með krabbamein.
Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Agnars Más Magnússonar en forspilið verður í höndum Aríels Péturssonar og barnanna hans tveggja, Jökuls Orra og Esju.
Hægt verður að styrkja krabbameinsfélagið í messukaffinu.
Sunnudagaskólarnir verða á sínum stað í Urriðaholtsskóla klukkan 10:00 og í safnaðarheimili Vídalínskirkju klukkan 11:00.
Minnum á jazztónleika til styrktar ljósinu sama dag klukkan 17:00 í Vídalínskirkju.
Verið innilega velkomin.