Bleikt hönnunarboð í Hafnarhúsinu 🎀
Hafnarhús, Tryggvagata 17, 101 Reykjavík Directions
Wed Oct 07 2026 16:00
Hönnuðir Bleiku slaufunnar 2026, Tanja Levý og Jökull Jónsson í Studio Pluto, bjóða ykkur í Bleikt hönnunarboð í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu miðvikudaginn 7. október kl. 16–18.
Tanja og Jökull segja frá hönnun Bleiku slaufunnar og veita innsýn í hönnunarferlið. En fyrst og fremst viljum við hittast, skála og fagna með ykkur! 🥂
Bleika slaufan verður til sölu og allur ágóði rennur til Krabbameinsfélagsins.
Öll hjartanlega velkomin – frítt inn.
Við hlökkum ótrúlega mikið til að sjá ykkur! Sjáumst í bleiku 💗