Bleikt kvöld Krabbameinsfélags Austfjarða

Bleikt kvöld Krabbameinsfélags Austfjarða

Skrúð á Fáskrúðsfirði, , 750 Fáskrúðsfjörður Directions

Wed Oct 21 2026 19:00

Krabbameinsfélag Austfjarða býður til Bleiks kvölds í Skrúð á Fáskrúðsfirði miðvikudaginn 21. október. Við ætlum að eiga saman skemmtilegt kvöld þar sem tónlist, hlátur og góð samvera verða í fyrirrúmi. Öll velkomin.

BLEIKT KVÖLD – Sjáðu þig Krabbameinsfélag Austfjarða býður til Bleiks kvölds í Skrúð á Fáskrúðsfirði miðvikudaginn 21. október. Við ætlum að eiga saman skemmtilegt kvöld þar sem tónlist, hlátur og góð samvera verða í fyrirrúmi. Öll velkomin. Húsið opnar kl. 19:00 og tökum við á móti gestum með fordrykk og léttum veitingum. Dagskrá hefst kl. 20:00. Karítas Harpa og Aron Leví sjá um tónlistarflutning og koma okkur í rétta gírinn fyrir kvöldið. Síðan tekur Snjólaug Lúðvíksdóttir við og sér um að kitla hláturtaugarnar með uppistandssýningunni MJÖG FÍN BARA. Snjólaug er einn fremsti uppistandari landsins og í þessari splunkunýju sýningu talar hún um allt milli himins og jarðar: gamlar frumbyrjur, laxasæði, co-parenting lífið, gusur, Temu-fíkn móður sinnar, bragðarefi og margt, margt fleira. Sýningin gæti móðgað fólk sem hrýtur hátt og elskar sund. Ókeypis aðgangur Á staðnum verður baukur fyrir þau sem vilja styrkja starf Krabbameinsfélags Austfjarða með frjálsum framlögum. Komdu og njóttu með okkur — góð tónlist, góður matur, hlátur og samvera á Bleiku kvöldi. Sjáðu þig. Skrúður, Fáskrúðsfirði Miðvikudagur 21. október Húsið opnar kl. 19:00 Dagskrá hefst kl. 20:00 Ókeypis aðgangur