Blóðbönd | Páll Óskar & Diddú
Salurinn, Hamraborg 6, 200 Kópavogur Directions
Thu Feb 25 2027 20:00
Blóðbönd er nýjasta tónleikaröð Salarins þar sem einstaklingar tengdir blóðböndum stíga saman á svið. Ólíkar stefnur, ólíkar kynslóðir - sameiginleg rót.
Hér eru á ferðinni einlægir tónleikar sem snúast um samspil, fjölskyldubönd og tónlist sem verður aðeins til á milli þeirra sem eiga sameiginlegan hljóðheim.
Það þarf vart að kynna systkinin Pál Óskar og Diddú Hjálmtýsbörn en þau hafa glatt Íslendinga í áratugi. Á þessum innilegu tónleikum fáum við einstaka innsýn inn í þetta fallega systkinasamband þar sem þau munu blanda tónlistarstílum sínum saman á nýjan og skemmtilegan hátt.
Ásgeir & Steini - 29.janúar | aukatónleikar 30.janúarDiddú & Palli - 26.febrúar | aukatónleikar 25.febrúar
Elísabet Ormslev & Helga Möller - 12.mars
Svala & Krummi - 30.apríl ríl