Bóka- og aðventugleði AÍ
Gróska | Fenjamýri, Gróska | Fenjamýri, jarðhæð Directions
Wed Nov 25 2026 17:00
Bóka- og aðventugleði Arkitektafélags Íslands verður haldin miðvikudaginn 25. nóvember kl. 17. Þar kynna arkitektarnir Albína Thordarson, Pétur H. Ármannsson, Þorsteinn Gunnarsson og Guðni Valberg þrjár nýjar bækur um íslenskan arkitektúr og byggingarsögu.
Boðið verður upp á jólalegar veitingar og létt spjall um bækurnar að kynningum loknum. Hægt verður að kaupa áritaðar bækur á staðnum.
Sigvaldi Thordarson arkitekt
Albína Thordarson og Pétur H. Ármannsson kynna bók sína um ævi og verk Sigvalda. Í bókinni er að finna fjölda áður óbirtra ljósmynda og teikninga ásamt ítarlegri skrá yfir verk hans.
Hvernig fangahús varð Stjórnarráðshús
Þorsteinn Gunnarsson rekur sögu Stjórnarráðshússins og segir frá því hvernig gamla fangahúsið varð að aðsetri stjórnvalda.
HÚS
Guðni Valberg kynnir bók sína og Önnu Drafnar Ágústsdóttur sagnfræðings. Í bókinni kynnast börn og fullorðnir 40 ólíkum húsum sem hvert á sína sögu um heimili og líf fólks á Íslandi frá landnámi til okkar daga. Atli Sigursveinsson og Didda Flygenring myndskreyttu bókina.