Bókakonfekt barna
Bókasafn Reykjanesbæjar, Hjallavegur 2, 260 Ytri-Njarðvík Directions
Sat Nov 14 2026 15:30
Við bjóðum börnum og fjölskyldum í skemmtilega og notalega bókastund með tveimur verðlaunaverkum. Höfundarnir lesa upp og spjalla við gesti.
Eva Rún og Blær koma til okkar með verðlaunabók sína „Bestu vinir“, sem hlaut Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2026. Þetta er fyndin spennusaga um vináttu, full af hasar og húmor!
Matthildur Yrsa Sigurðardóttir var ellefu ára þegar náttúruhamfarirnar í Grindavík hófust. Í bókinni „Síðasti dagurinn“ segir hún frá reynslu sinni í samvinnu við Þórunni Rakel Gylfadóttur, og Didda Flygenring myndlýsir. Fyrir verkið hlutu þær Sólfaxa, íslensku barnabókaverðlaunin, árið 2026.
✂️ Að upplestri loknum verður föndur fyrir alla krakka.
Aðgangur ókeypis og öll velkomin!
Viðburðurinn er styrktur af Uppbyggingasjóði Suðurnesja