Bókaskipti | Salka x Frami
Salka bókabúð, Hverfisgata 89, 101 Reykjavík Directions
Tue Nov 10 2026 20:00
Komdu með eina bók sem þú hefur lesið og langar að gefa áfram.
Við verðum með pappír og merkimiða svo þú getir pakkað bókinni inn og skrifað eina eða tvær línur um hana og hvers vegna þú valdir hana, án þess að gefa upp hvaða bók þetta er.
Þegar allir hafa pakkað bókunum inn tökum við stutt bókakviss sem ræður því í hvaða röð við fáum að velja okkur bók.
Þannig að það eina sem þú þarft að gera er að mæta með bók 📚
Við verðum í nýju og glæsilegu viðburðarými á neðri hæð bókabúðar Sölku þriðjudaginn 10. nóvember kl. 20.
Athugið að ekki er lyfta niður á neðri hæðina. Hægt er að fá aðgang beint inn á neðri hæðina með því að hafa samband við salka@salka.is.
Við hlökkum til að sjá ykkur!