Bríet
The Green Hat, Hafnarstræti 96, 600 Akureyri Directions
Sun Dec 27 2026 21:00
Bríet
Eftir jólahátíðirnar er gott að breyta til og mæta á hressa tónleika til að dansa af sér jólamatinn og sukkið. Bríet ætlar að mæta á Græna Hattinn ásamt fríðu föruneyti og frábærum listamönnum, Magnúsi Jóhanni hljómborðsleikara og Bergi Einari trommara. Saman ætla þau að spila hin ýmsu lög úr katalóg Bríetar, meðal annars eitthvað af nýja efninu hennar í fallegum búningi. Ekki láta þig vanta, mættu og hafðu gaman eftir kósýheitin!
Forsalan hefst laugardaginn 7.nóv. kl. 12.00 á grænihatturinn.is
Miðaverð: 8500kr