Bryndís Guðjóns og Matthildur Anna - Tónlistarnæring

Bryndís Guðjóns og Matthildur Anna - Tónlistarnæring

Music school Garðabær, Kirkjulundur 11, 210 Garðabær Directions

Wed 04.11.2026 12:15

Íslensk og þýsk ljóð ásamt aríum eftir R. Strauss, Mozart og Offenbach eru á dagskrá hjá sópransöngkonunni Bryndísi Guðjónsdóttur og Matthildi Önnu Gísladóttur píanóleikara sem veita gestum Tónlistarnæringu nóvembermánaðar. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.

Bryndís Guðjónsdóttir lauk meistaraprófi í óperusöng árið 2021 í Mozarteum tónlistarháskólanum í Salzburg en hún hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir söng sinn, m.a. Grímuna árið 20215 fyrir hlutverk greifynjunnar í Brúðkaupi Fígarós. Þá hefur hún einnig unnið til verðlauna á Spáni, Ítalíu og Tékklandi. Bryndís kemur reglulega fram í óperuhúsum og tónleikasölum víða um Evrópu meðal annars í Dresden, Essen, Dortmund, Darmstadt, Chemnitz, Kiel, Kassel, Madrid, Nürnberg, Munich, Martina Franca, Salzburg, Stuttgart, Sevilla, Stralsund, Prague, Reykjavík, Róm og Vilnius.

Matthildur Anna Gísladóttir lauk bakkalárnámi í píanóleik frá Listaháskóla Íslands. Þaðan láleiðin í Royal Academy of Music í London þar sem hún lauk meistaranámi í meðleik árið 2009. Árið 2014 lauk Matthildur meistaranámi í óperuþjálfun frá Royal Conservatoire ofScotland (RCS). Veturinn 2014-15 starfaði Matthildur sem óperuþjálfi hjá RCS. Matthildur hefur komið fram á fjölda tónleika hérlendis sem erlendis og komið að óperuuppsetningum, m.a. hjá Kammeróperunni, Óperudögum, Íslensku óperunni, British Youth Opera, RCS, Scottish Opera og Lyric Opera Studio í Weimar.

Matthildur starfar nú við tónlistardeild Listaháskóla Íslands.

Performers