200 tíma kennaranám í Yoga Shala Reykjavík haustið 2026

200 tíma kennaranám í Yoga Shala Reykjavík haustið 2026

Yoga Shala, Skeifan 7, 108 Reykjavík Directions

Fri 04.09.2026 17:00

200 tíma námið hefst formlega föstudaginn 4. september 2026. Þeta grunnkennaranám fyrir alla sem vilja dýpka skilning sinn á yoga fræðunum og öðlast kunnáttu til að leiðbeina öðrum við iðkun yoga á öruggan hátt. Námið stendur í 9 mánuði með mánaðarlegum kennsluhelgum, yoga æfingum og innri vinnu. Það er að mestu kennt á íslensku og hentar vel samhliða vinnu. Í náminu fá nemendur fjölbreytta þjálfun með áherslu á Yoga Flæði (e. Vinyasa flow).

Saman köfum við ofan í:

allar helstu grunnstöðurnar (e. Asana)

Öndunaræfingar (e. pranayama)

Sólarhyllingar (e. sun salutations)

Hugleiðslu (e. meditation)

Aðstoð í stöðum (e. assisting)

Möntrur (e. mantras)

Djúpslökun (e. Yoga Nidra)

Líffærafræði (e. anatomy)

Yogaheimspeki

Kennslu-aðferðarfræði

Orkustöðvar ( Chakras)

og margt fleira spennandi.

Aðalkennarar og umsjónarmenn námsins eru Ingibjörg Stefánsdóttir, Klara Kalkusova, en auk þeirra koma inn fleiri frábærir kennarar og deila visku sinni. Námið er samþykkt af Yoga Alliance, alþjóðlegum Yoga-kennara samtökum, og Jógakennarafélagi Íslands.

Lestu nánar um námið hér: yogashala.is/yogakennaranam

Námsefni kennaranámsins er fjölbreytt, umfangsmikið, áhugavert og skemmtilegt. Okkar reynsla er að kennaranemar upplifi námið sem persónulegt ferðalag þar sem jákvæð sjálfsskoðun er höfð að leiðarljósi. Kennaranemar geta búið til og kennt sína eigin tíma undir lok námsins.

Þú sækir um námið með því að senda umsókn á namskeid@yogashala.is, þar sem þú kynnir þig og segir frá fyrri reynslu af Yoga.

Performers