Ceasetone heldur tónleika á 12 Tónum!
12 Tónar, Skólavörðustígur 15, 101 Reykjavík Directions
Sat Nov 21 2026 20:00
Ceasetone (Hafsteinn Þráinsson) er þjóðinni kunnugur sem lagahöfundur, pródúsent, útsetjari og gítarleikari með hinum ýmsu af þekktasta tónlistarfólki þjóðarinnar til hliðar þess að gefa út músík undir sínum eigin formerkjum..
Ceasetone verkefnið hefur legið í dvala á meðan Hafsteinn hefur verið á þeytingi að vinna í hinum ýmsu tónlistarverkefnum en er nú komið á fulla ferð með nýrri músík þar sem farið er aftur í akústískar rætur verkefnisins,
hér má til dæmis hlýða á nýjustu útgáfu Ceasetone, "Lagið um skerið" sem kom út á dögunum.
https://open.spotify.com/album/19vYYXcaQAauAiSLKqoWor?si=lAueP0JrTVqHLWfpPCuCZg
Ceasetone stígur á stokk kl 20 á 12 Tónum einn síns liðs með kassagítar í hönd en ekki láta einfaldleikann blekkja ykkur, það verða læti, stuð og rjúkandi stemning!