Copilot í daglegu starfi

Copilot í daglegu starfi

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Wed Jan 27 2027 13:00

Náðu lengra með Microsoft Copilot með hagnýtri þjálfun.

Á þessu námskeiði leggjum við áherslu á hagnýta notkun Copilot í daglegu starfi með áherslu á verklega færni og lausnir fyrir daglega vinnu.

Námskeiðið skiptist í tvo hluta. Í fyrri hluta (2 klst.) er lagður grunnur að hvað Copilot er, hvernig Copilot virkar og hvernig á að byrja að nota Copilot með skilvirkum hætti í algengum verkefnum. Í seinni hluta (3 klst.) förum við dýpra og í ítarlegar aðferðir, gagnlegar brellur og beinar æfingar sem hjálpa þér að ná því besta út úr Copilot.

Áhersla er lögð á verklega þjálfun og þátttakendur vinna með sína eigin tölvu í gegnum námskeiðið.

Námskeiðið er fyrir alla sem nota Microsoft 365 og hafa Copilot með premium leyfi.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Hvað er Microsoft 365 Copilot og hvernig tengist það öllum Microsoft verkfærunum.
  • Copilot sem daglegur vinnufélagi og ráðgjafi.
  • Hvernig nota ég Copilot í Outlook, Teams, Word, PowerPoint og Excel til að létta undir í önnum dagsins.
  • Verklegar æfingar til að auka færni.
  • Förum ítarlegar yfir kvaðningar (e. prompts) og hvernig spara ég tíma og bæti gæði.
  • Hvernig hægt er að nýta fulltrúa (e. agents) í verkefnum.
  • Förum yfir nokkur brögð og brellur í notkun Copilot.
  • Hvernig er hægt að nota glósubækur (e. notebooks) við vinnu í Copilot.
  • Önnur verkfæri eins og Loop, Pages og OneNote.
  • Verklegar æfingar til að auka færni.

Ávinningur þinn:

  • Skilur hvað Microsoft 365 Copilot er og hvernig það getur nýst þér í daglegum störfum.
  • Nærð tökum á grundvallarnotkun Copilot í Outlook, Teams, Word, PowerPoint og Excel.
  • Lærir að skrifa skilvirkari kvaðningar sem gefa þér betri og nytsamlegri niðurstöður.
  • Lærir að nota Copilot sem virkan vinnufélaga í daglegum starfi.
  • Þekkir og beitir brögðum og brellum sem flestir notendur vita ekki af.
  • Nýtir þér fulltrúa (e. agents) til að einfalda og flýta fyrir verkefnum.
  • Eykur skilvirkni og gleði í starfi sem verkfærum sem þú hefur þegar aðgang að.

Aðrar upplýsingar

Þátttakendur þurfa að hafa eigin tölvu og aðgang að Microsoft 365 Copilot með premium leyfi.