Copilot í daglegu starfi
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Wed Dec 02 2026 10:00
Náðu lengra með Microsoft Copilot með hagnýtri þjálfun.
Á þessu námskeiði leggjum við áherslu á hagnýta notkun Copilot í daglegu starfi með áherslu á verklega færni og lausnir fyrir daglega vinnu.
Námskeiðið skiptist í tvo hluta. Í fyrri hluta (2 klst.) er lagður grunnur að hvað Copilot er, hvernig Copilot virkar og hvernig á að byrja að nota Copilot með skilvirkum hætti í algengum verkefnum. Í seinni hluta (3 klst.) förum við dýpra og í ítarlegar aðferðir, gagnlegar brellur og beinar æfingar sem hjálpa þér að ná því besta út úr Copilot.
Áhersla er lögð á verklega þjálfun og þátttakendur vinna með sína eigin tölvu í gegnum námskeiðið.
Námskeiðið er fyrir alla sem nota Microsoft 365 og hafa Copilot með premium leyfi.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Hvað er Microsoft 365 Copilot og hvernig tengist það öllum Microsoft verkfærunum.
- Copilot sem daglegur vinnufélagi og ráðgjafi.
- Hvernig nota ég Copilot í Outlook, Teams, Word, PowerPoint og Excel til að létta undir í önnum dagsins.
- Verklegar æfingar til að auka færni.
- Förum ítarlegar yfir kvaðningar (e. prompts) og hvernig spara ég tíma og bæti gæði.
- Hvernig hægt er að nýta fulltrúa (e. agents) í verkefnum.
- Förum yfir nokkur brögð og brellur í notkun Copilot.
- Hvernig er hægt að nota glósubækur (e. notebooks) við vinnu í Copilot.
- Önnur verkfæri eins og Loop, Pages og OneNote.
- Verklegar æfingar til að auka færni.
Ávinningur þinn:
- Skilur hvað Microsoft 365 Copilot er og hvernig það getur nýst þér í daglegum störfum.
- Nærð tökum á grundvallarnotkun Copilot í Outlook, Teams, Word, PowerPoint og Excel.
- Lærir að skrifa skilvirkari kvaðningar sem gefa þér betri og nytsamlegri niðurstöður.
- Lærir að nota Copilot sem virkan vinnufélaga í daglegum starfi.
- Þekkir og beitir brögðum og brellum sem flestir notendur vita ekki af.
- Nýtir þér fulltrúa (e. agents) til að einfalda og flýta fyrir verkefnum.
- Eykur skilvirkni og gleði í starfi sem verkfærum sem þú hefur þegar aðgang að.
Aðrar upplýsingar
Þátttakendur þurfa að hafa eigin tölvu og aðgang að Microsoft 365 Copilot með premium leyfi.