D&D smiðja í Molanum 10. og 24. september
Molinn Ungmennahús, Hábraut 2, 200 Kópavogur Directions
Thu Sep 10 2026 19:30
D&D smiðja í Molanum: Búðu til hetjuna þína og leggðu af stað í ævintýri!
Langar þig að prófa Dungeons & Dragons en veist ekki hvar þú átt að byrja?
Þann 10. september verður D&D-hetjusmiðja þar sem þú býrð til þína eigin persónu, málar fígúrur og færð innsýn í grunnatriði leiksins.
Þann 24. september verður svo spilað sérstakt D&D-ævintýri sem Guðmundur Hrafn Geirsson skapaði í Skapandi sumarstörfum Kópavogs í sumar. Hann mun stýra báðum kvöldum.
Engin fyrri reynsla er nauðsynleg.. bara smá ímyndunarafl. Öll 16-25 ára velkomin!
Pizza í boði frá snillingunum á Pizzunni og fígúrur og málning frá vinum okkar í Nexus 🍕