Bogomil Font og Greiningadeildin

Bogomil Font og Greiningadeildin

The Green Hat, Hafnarstræti 96, 600 Akureyri Directions

Fri 07.08.2026 21:00

„Það er allt svo næs fyrir norðan“

Bogomil Font og Greiningardeildin á Græna hattinum 7. ágúst

Félagarnir úr Hljómskálanum, þeir Sigtryggur Baldursson, Bragi Valdimar og Kiddi hjálmur fara fyrir þessari fjölskipuðu og hoppandi fersku gleðisveit og mæta með glænýja sumarplötu í farteskinu sem kallast „Haf þú ekki áhyggjur af því“. Þar er að finna ýmis hressileg kulda-kalypsólög sem þeir hafa sent frá sér undanfarin misseri. Sjóddu frekar egg, Skítaveður, Þú trumpar ekki ástina og Þú stendur alltaf með mér hafa spriklað mikið í útvarpi og nú er komið að því að sjá og heyra þau flutt á besta sviði landsins, á Græna hattinum — ásamt fleiri ylvolgum sumarsmellum úr safni sveitarinnar.

Forsalan hefst sun. 5.júlí kl.12.00 á grænihatturinn.is

Performers