Dægurlagadraumar í Tónspili

Dægurlagadraumar í Tónspili

Tónspil, Hafnarbraut 22, 740 Neskaupstaður Directions

Sat 29.08.2026 20:00

Dægurlagadraumar troða upp í Tónspili í Neskaupstað!

Um er að ræða tónlistarskemmtun með hinni hæfilega hallærislegu hljómsveit Dægurlagadraumum, þar sem flutt er úrval dægarlaga.

Skemmtunin er sambland af söng- og dansgleði með huggulegri kaffihúsastemningu. Gestum gefst færi á að kaupa sér veitingar meðan það hlustar, eða standa upp og dilla sér við okkar yndislegu íslensku (og íslenskuðu) dægurlög, sem virka eins og malt og hangikjöt á sálina. Lögin sem Haukur Morthens, Villi Vill, Erla Þorsteins og allir hinir fluttu svo yndislega lifna á ný.

Hljómsveitina skipa að þessu sinni:

Jón Hilmar Kárason

Garðar Eðvaldsson

Erla Dóra Vogler

Þórður Sigurðarson

Haukur Ingólfsson

Verð kr. 3.500,-

Miðar seldir við innganginn.

Fjarðabyggð (Menningarstofa Fjarðabyggðar), SVN, Alcoa Fjarðaál, SÚN og Sesam Brauðhús styrkja tónleikana.

Performers