Dagbókamálþing: Túlkun og heimildagildi

Dagbókamálþing: Túlkun og heimildagildi

Sheep Farming Museum, Sævangur við Steingrímsfjörð, by road 68, 510 Hólmavík Directions

Sat Oct 10 2026 13:00

Laugardaginn 10. október verður haldið í Sævangi á Ströndum málþing um dagbækur og gildi þeirra fyrir fræðilegar rannsóknir á samfélaginu og tjáningu fólks á ólíkum tímum. Þarna verður mikið um dýrðir, fluttir fróðlegir fyrirlestrar, farið í gönguferð og veglegt kaffihlaðborð verður á boðstólum hjá Sauðfjársetrinu.

Fræðimenn á sviði þjóðfræði og sagnfræði sem hafa glímt við dagbækur í rannsóknum sínum flytja skemmtileg og fjölbreytt erindi um efnið, setja það í samhengi og kafa djúpt í einstakar heimildir.

Málþingið er haldið í tilefni af 10 ára afmæli Rannsóknaseturs HÍ á Ströndum - Þjóðfræðistofu, sem starfrækt er á Hólmavík. Það er haldið í samstarfi við fjölda aðila, m.a. Sögusmiðjuna, Félag þjóðfræðinga á Íslandi, Fjölmóð, Miðstöð einsögurannsókna, Sýnisbækur íslenskrar alþýðumenningar og Sauðfjársetur á Ströndum, Viðburðurinn er styrktur af Uppbyggingasjóði Vestfjarða.

Daginn áður, á föstudeginum 9. október verður afmælisfögnuður og opið hús hjá Rannsóknasetrinu í Þróunarsetrinu á Hólmavík, frá kl. 17-19, sjá https://www.facebook.com/events/1055304967473149/

Verið öll hjartanlega velkomin!