Deig - Útgáfufögnuður!

Deig - Útgáfufögnuður!

Ásmundarsalur, Freyjugata 41, 101 Reykjavík Directions

Wed Oct 28 2026 17:00

Í tilefni af útgáfu ljóðabókarinnar Deig eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur verður blásið til útgáfuhófs í Ásmundarsal miðvikudaginn 28. október kl. 17:00.

Ljóð, myndlist og tónlist mætast í notalegri hátíðarstund þar sem útgáfu bókarinnar verður fagnað.

Frumsýnt verður vídeóverk byggt á fyrsta ljóði bókarinnar þar sem fram koma Guðrún Ásmundsdóttir, Kjartan Ragnarsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir og Kristján Ýmir Birkisson.

Ragnheiður Harpa mun lesa upp úr bókinni og árita eintök. Léttar veitingar verða í boði og bókin á sérstöku útgáfutilboði.

Við hlökkum til að sjá ykkur!