Deildarstjórinn sem leiðtogi

Deildarstjórinn sem leiðtogi

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Mon Feb 08 2027 08:30

Hagnýtt námskeið fyrir deildarstjóra og stjórnendur sem vilja efla forystu, samskipti og starfsánægju í leikskólanum.

Deildarstjórar í leikskólum gegna lykilhlutverki í að leiða faglegt starf, styðja við starfsfólk og skapa jákvætt starfsumhverfi.

Á námskeiðinu verður lögð áhersla á kennslufræðilega forystu, leiðbeinandi samtöl og leiðir til að efla samstarf, traust og vellíðan innan deildar. Jafnframt verður fjallað um hvernig takast má á við samstarfserfiðleika af fagmennsku og jákvæðan hátt. Einnig verður fjallað leiðir til að draga úr álagi í daglegu starfi. Námskeiðið byggir á umræðum, virkri þátttöku og hagnýtum verkefnum sem nýtast í daglegu starfi.

Námskeiðið er ætlað deildarstjórum og stjórnendum í leikskólum sem vilja þróa leiðtogahlutverk sitt og efla faglegt samstarf á vinnustaðnum.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Kennslufræðilega forystu og fagleg vinnubrögð í leikskólastarfi.
  • Leiðbeinandi samtöl, fagleg samskipti og uppbyggilega lausn samstarfserfiðleika.
  • Hvernig efla má jákvæðan samstarfsvettvang sem einkennast af trausti og vellíðan.
  • Leiðir sem efla styrkleika og öryggi í leiðtogahlutverki deildarstjóra.
  • Leiðir sem miða að því að draga úr álagi á deild.

Ávinningur þinn:

  • Aukið öryggi í forystuhlutverki faglegs leiðtoga.
  • Aukinn styrkur í leiðbeinandi samtölum og faglegum samskiptum.
  • Þátttakendur fá þau verkfæri sem þarf til að takast á við samstarfserfiðleika og skapa jákvæðan starfsanda.
  • Aukin þekking um hvernig nýta má styrkleika starfsfólks á markvissan hátt til að efla vellíðan og samstarf.