DLD og unglingar: Áskoranir og stuðningur

DLD og unglingar: Áskoranir og stuðningur

Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions

Mon Nov 23 2026 20:00

DLD og unglingar

Rafrænn kvöldfyrirlestur á vegum Máleflis með Lindu Björk Markúsardóttur talmeinafræðingi. Mánudaginn 23. nóvember kl. 20:00

Unglingsárin eru krefjandi tími þar sem eru víða gerðar miklar mállegar kröfur til ungmenna. Verkefni unglingsáranna reynast mörgum flókin verkefni, ekki síst ef DLD er til staðar til að flækja myndina enn frekar.

Hvernig birtist DLD á unglingsárum? Hvað er hægt að gera til að styðja við unglinga með DLD? Hvað geta þeir gert sjálfir? Er gervigreindin hjálpleg eða hættuleg hér?

Í fyrirlestrinum fjallar Linda Björk Markúsardóttir um þessi viðfangsefni og fleiri, með áherslu á skilning á DLD á unglingsárum og hvernig hægt er að styðja ungmenni í daglegu lífi.

Um fyrirlesarann:

Linda Björk Markúsardóttir er menntaður íslensku- og talmeinafræðingur. Hún starfar sem talmeinafræðingur á Grensásdeild Landspítala og sjálfstætt á stofu, þar sem hún sinnir m.a. unglingum og ungmennum með DLD.

Þátttaka og aðgangur:

Fyrirlesturinn er opinn öllum og fer fram á Zoom.

Hlekkur á fyrirlesturinn verður birtur hér í viðburðinum þegar nær dregur.

Viltu styðja við fræðslustarf Máleflis?

Málefli leggur áherslu á að bjóða upp á aðgengilega fræðslu um tal-, mál- og samskiptaerfiðleika barna og ungmenna.

Með því að gerast félagi í Málefli styður þú við starf félagsins og hjálpar okkur að halda áfram að bjóða upp á fræðslu og fyrirlestra sem þessa.

Árgjald er 2.500 kr.

Gerast félagi: https://www.malefli.is/gerast-felagi

Performers