Undir sömu stjörnu
Hof Menningarhús | Hamraborg, Strandgata 12, 600 Akureyri Directions
Sun 18.10.2026 16:00
Sama ár og þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson orti ljóð sitt um Ástarstjörnu yfir Hraundranga samdi Richard Wagner óperuaríu til „Kvöldstjörnunnar“ sunnar í Evrópu. Var það mögulega sama tindrandi himinstjarnan sem kveikti hugmyndir beggja?
Í þessari aðgengilegu og upplyftandi söngdagskrá er saga óperunnar rakin, frá endurreisn til okkar daga, allt frá hirðsölum Ítalíu að Íslands ströndum.
Einvala lið listamanna fléttar saman fróðleik og skemmtun og flytur okkur nokkrar fegurstu perlur óperusögunnar.
Fram koma Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Kór Akureyrarkirkju, Kammerkór Norðurlands, einsöngvarar Óperunnar og leikarar Þjóðleikhússins. Handrit og leikstjórn er í höndum Ólafs Egils Egilssonar og tónlistarstjóri Óperunnar, Richard Schwennicke, stjórnar hljómsveit.
Frumsýnt verður 18. október í Hofi í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar.
Viðburðurinn verður einnig fluttur á Eskifirði, í Skálholti, í Reykjanesbæ og síðar í
Þjóðleikhúsinu.
Performers
-
SinfoniaNordSymphony orchestra performing alongside Elísabet Waage
-
Kór AkureyrarkirkjuA choir associated with Akureyri Church.
-
Kammerkór NorðurlandsChamber choir performing a mix of Icelandic and international compositions.
-
Richard Schwennicke
Conductor of the concert.
-
Ólafur Egill Egilsson
Director and playwright