Ekki fresta lífinu!

Ekki fresta lífinu!

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Mon Nov 16 2026 10:00

Þetta vandaða námskeið er hugsað sem eins konar handleiðsla fyrir hvern og einn til að skilja sitt eigið sálarlíf og þekkja sig betur.

Við öll höfum fortíð og reynslu að baki. Öll erum við að koma úr okkar átt, með okkar reynslu og raunir. Við erum öll mishæf að ræða um okkar tilfinningar sem við höfum setið á frá okkar fortíð. Tilfinningar okkar eru mikilvægar til að hjálpa okkur að komast í gegnum hvern dag. Þá er mikilvægt að þekkja þær og skilja þær, auk þess að ræða um þær. Hvernig líður mér? Gott samtal við sjálfa/sjálfan þig, gæti gert þér virkilega gott.

Námskeiðið felur í sér að fræða og ræða um eigin líðan, líta inn á við, gera upp erfiða atburði fortíðar og sættast við þau átök sem maður hefur farið í gegnum. Lifa lífinu frá núlíðandi degi með þakklæti í huga fyrir það hvað maður hefur en ekki hvað maður hefur þurft að þola. En samt sem áður er mikilvægt að nýta efni námskeiðs til að endurhugsa erfiða atburði fortíðar yfir í eitthvað jákvætt sem maður getur nýtt til að styrkja sig í dag. Eigin líðan fer fram í persónulegri sjálfsvinnu, ekki er þörf á að ræða sína líðan á námskeiðinu.

Námskeiðið er fyrir öll sem vilja líta inn í eigin huga og ná að skilja eigin tilfinningar betur og hvaða hugsanir eru ráðandi í huganum, auk þess að skilja betur af hverju ákveðin viðbrögð hjá okkur koma fram. Öll höfum við okkar punkta í sálinni, við getum sagt „ör“ á sálinni sem við þurfum að hlúa að, hreinsa upp það sem situr og sauma skurðinn aftur á fallegan hátt, með eigin vinnu.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Hvernig líður mér? Tilfinningar og hugsanir.
  • Hvað truflar mig huglægt?
  • Hvað er það sem gefur mér vellíðan?
  • Er ekki gott að tala um tilfinningar og líðan ? Ef ekki, af hverju þá?
  • Hverjum treysti ég? Get ég talað við viðkomandi um mína líðan í trúnaði?

Ávinningur þinn:

  • Betri líðan.
  • Betra jafnvægi.
  • Betri stjórn.
  • Betra líf! (Sem er mikilvægasti ávinningurinn).

Aðrar upplýsingar

Þátttakandi þarf að hafa með sér bók til að skrifa niður atriði sem honum/henni eru áhugaverð. Einnig er mikilvægt að hafa með sér möppu sem þátttakandi prentar út verkefni/ verkfæri fyrir viðkomandi til að vinna með (þau skjöl verða send fyrir námskeið sem verkfærakista). Farið er yfir þau verkefni/verkfæri í tímum, kennari leiðbeinir með úrvinnslu á þeim verkefnum. Þátttakandi þyrfti að fara i gegnum stuttar spurningar áður en námskeiðið hefst (sendur listi til þeirra). Þannig fær kennarinn/leiðbeinandinn skilvirkari sýn á þörf þeirra sem sækja námskeiðið.