Endómetríósa
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Fri Nov 27 2026 09:00
Viltu dýpka skilning þinn á endómetríósu og bæta greiningu og meðferð einstaklinga með langvinna grindarverki?
Á námskeiðinu verður farið yfir þá þekkingu sem liggur fyrir á þessum flókna sjúkdómi ásamt hagnýtri nálgun í daglegu starfi.
Endómetríósa er algengur en oft vangreindur sjúkdómur sem getur haft veruleg áhrif á lífsgæði, frjósemi og andlega líðan. Á námskeiðinu verður farið yfir einkenni, greiningu og meðferðarmöguleika með áherslu á hagnýta klíníska nálgun og þverfaglega meðferð.
Fjallað verður um hormónameðferð, verkjameðferð, skurðaðgerðir, áhrif sjúkdómsins á daglegt líf og aðkomu heilbrigðiskerfisins að sjúkdómnum.
Að loknu námskeiði ættu þátttakendur hafa fengið aukna þekkingu á greiningu og meðferð sjúklinga með endómetríósu.
Kennslan fer fram með fyrirlestrum, umræðum og klínískum dæmum.
Námskeiðið er ætlað hjúkrunarfræðingum, en getur einnig nýst öðrum stéttum eins og læknum, ljósmæðrum, sjúkraþjálfurum og þeim sem vinna með konur með endómetríósu og langvinna verki.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Einkenni og birtingarmyndir endómetríósu.
- Greiningu og mismunagreiningar.
- Hormónameðferð og önnur meðferðarúrræði.
- Skurðaðgerðir og hlutverk sérhæfðra teyma.
- Frjósemi og áhrif á lífsgæði.
- Langvinna verki og miðlæga verkjanæmingu.
- Samskipti við sjúklinga og heildræna nálgun.
- Klínísk tilfelli og umræður.
Ávinningur þinn:
- Að þekkja helstu einkenni endómetríósu.
- Að þekkja greiningarferli og meðferðarúrræði.
- Að skilja betur tengsl endómetríósu og langvinnra verkja.
- Að geta frætt og stutt sjúklinga á upplýstan hátt.
- Að geta metið hvenær þörf er á að vísa sjúklingi í sérhæfða þjónustu.
- Að þekkja þau úrræði sem í boði eru hér á landi.