Endurómur

Endurómur

Báran, Bárugata 21, 300 Akranes Directions

Sat Oct 24 2026 01:00

ENDURÓMUR

Samsýning í Beitunni á Breið – Vökudagar á Akranesi

Í tilefni Vökudaga opnar samsýningin Endurómur í Beitunni á Breið, þar sem 21 myndlistarmaður kemur saman og sýnir verk sín.

Nafnið Endurómur vísar til samtalsins sem verður til í rýminu – milli verkanna sjálfra, listamannanna og gestanna, en einnig í samspili myndlistar, frásagnar og tónlistar. Hvert verk ber með sér sína rödd en í nálægð við önnur verk, fólk og ólíkar listgreinar getur eitthvað nýtt kviknað og endurómað áfram.

Sýningin verður því ekki aðeins vettvangur til að skoða myndlist heldur lifandi rými fyrir list, sköpun, samtal og samveru.

Hvenær?

Opnun – laugardaginn 24. október

Sýningin opnar kl. 13:00.

Kl. 16:30 verða tónleikar þar sem sex söngkonur koma fram:

Hanna Þóra Guðbrandsdóttir,

Heiðdís Hanna Sigurðardóttir,

Lára Magnùsdóttir,

Þórunn María Örnólfs-Brynjudóttir,

Brynja Valdimarsdóttir,

Katrín Valdís Hjartardóttir,

Helgi Hannesson píanóleikari.

25. Október -Sunnudaginn:

Kl. 14:00 mun Þóra Gríms, sagnaþula, segja sögu og bæta þannig rödd frásagnarinnar inn í Enduróminn.

Opnunartímar

Sunnudaginn 25. október: kl. 13:00–18:00

Virka daga: kl. 14:00–18:00 – kaffi á staðnum

Helgar: kl. 13:00–18:00

Um helgar verða listamenn að störfum á staðnum og gestum gefst tækifæri til að fylgjast með sköpunarferlinu, spjalla við listafólkið og fá innsýn í hugmyndirnar og vinnuna á bak við verkin.

Hvar?

Beitan á Breið, Akranesi

Verið hjartanlega velkomin í Enduróm – þar sem ólíkar raddir, verk og listform mætast og samtalið heldur áfram.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest <3