Er íslenskur hlutabréfamarkaður ónýtur?

Er íslenskur hlutabréfamarkaður ónýtur?

Vinnustofa Kjarval, Austurstræti 10, 101 Reykjavík Directions

Wed Nov 04 2026 17:00

Velta á innlendum hlutabréfamarkaði hefur ekki verið minni frá árinu 2020. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um tæp 14% á árinu á meðan aðrir norrænir markaðir hafa hækkað. Lífeyrissjóðir eru ráðandi í eignarhaldi, fáir einkafjárfestar bera markaðinn uppi og tæpir 2.000 milljarðar króna liggja á innlánum heimila.

Er þetta tímabundin lægð í háu vaxtastigi eða kerfislægur vandi? Hver á að kaupa íslensk hlutabréf á næstu árum og hvað þarf að breytast?

FVH fær til sín fólk sem horfir á markaðinn frá ólíkum hliðum:

● Andrea Olsen, framkvæmdastjóri Frigus

● Helgi Frímannsson, greining í verðbréfamiðlun Landsbankans

● Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs

● Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá

Fundarstjóri er Rósa Kristinsdóttir, sérfræðingur hjá VEX.

Að pallborði loknu verður opið fyrir spurningar úr sal.

Frítt fyrir félaga í FVH. 4.990 kr. fyrir aðra gesti. Skráning á FVH.is