Evrópulöggjöf um gervigreind
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Tue Jan 26 2027 13:00
Vertu klár þegar regluverkið tekur gildi.
Gervigreind er að umbreyta vinnustöðum, þjónustu og ákvarðanatöku — og brátt mun nýtt regluverk skilgreina hvernig hún má og á að vera notuð. Bráðlega ber Íslandi að innleiða reglugerð Evrópusambandsins um gervigreind (EU AI Act). Mun hún hafa bein áhrif á fyrirtæki, stofnanir og opinbera aðila sem þróa, kaupa eða nýta gervigreind.
Mikilvægt er að skilja þau rök sem búa að baki reglum um gervigreind, kosti þeirra og galla, og áskoranir við reglusetningu. Sá skilningur auðveldar túlkun og beitingu regluverksins og aðstoðar við regluhlítni.
Til að setja evrópska regluverkið í samhengi og dýpka skilning verður einnig litið til þróunar og löggjafar í öðrum heimshlutum.
Á námskeiðinu verður fjallað um regluverk Evrópusambandsins og áhættuflokka sem og hvaða áhrif innleiðingin hefur á íslensk fyrirtæki og stofnanir.
Vertu klár þegar regluverkið tekur gildi.
Námskeiðið er ætlað öllum sem vinna með gervigreind, m.a. þau sem starfa í opinberri stjórnsýslu, við stefnumótun, innleiðingu, innkaup, lögfræði, stjórnun, upplýsingatækni eða þróun. Engar forkröfur eru gerðar.
Námskeiðið er byggt á eldra námskeiði sem hét Gervigreind - regluverk og stefnumótun, en hefur hér verið endurskipulagt og fjallr nú eingöngu um lög og reglur varðandi gervigreind.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Reglugerð Evrópusambandsins – The EU AI Act.
- Áhættuflokkar reglugerðarinnar, skilgreiningar og kröfur.
- Þegar gervigreind felur í sér mikla hættu fyrir grundvallarréttindi einstaklinga.
- Hvaða áhrif innleiðing reglugerðar Evrópusambandsins um gervigreind hefur á íslensk fyrirtæki og stofnanir og hvernig draga má úr áhættu.
Ávinningur þinn:
- Þekking og skilningur á reglum Evrópuréttar sem gilda um gervigreind, sem nýtist sérstaklega þegar þær verða innleiddar á Íslandi.
- Þekking og skilningur á því hvað fyrirtæki og stofnanir þurfa að gera til að mæta kröfum samkvæmt reglum Evrópuréttar og draga úr áhættu í starfsemi sinni.