EX LIBRIS III – Aðventa

EX LIBRIS III – Aðventa

Edda, Arngrímsgata 5, 107 Reykjavík Directions

Sat Dec 05 2026 12:00

Tónleikarnir fara fram á bókasafninu í Eddu og tilheyra tónleikaröðinni Ex Libris. Á sama tíma fer fram jólafjölskyldusmiðja fyrir alla fjölskylduna.

Gadus Morhua hefur þegar haslað sér völl sem þjóðlaga-usla-sveit og er þekkt fyrir að „djöflast í forminu“. Arnar Eggert Thoroddsen komst svo að orði þegar hann fjallaði um fyrsta geisladisk hópsins, Peysur og parruk, í Morgunblaðinu á síðasta ári. Þar gat hann þess einnig að tónlistarflutningur hópsins einkenndist af óvæntum bólfélögum; frumsömdu efni í bland við ævafornt, dökkleitu langspili úr innstu kynstrum baðstofunnar og flautuleik úr furðuskógi.

Gadus Morhua hefur hingað til snúið eldri þjóðlögum bæði á réttuna og rönguna og tvinnað þau saman við barokktóna. En hnignunarkennd samtvinnun baðstofuarfs og barokktónlistar, í bland við frumsamdar nýsmíðar orða og tóna innan sama hljómheims, er aðal sveitarinnar.

Nú ætlar Gadus Morhua heldur betur að uslast með jólalögin og blanda saman nýjum kvæðum og eldri í dagskrá þeirra sem ber heitið Frábæra – bæra. Þar munu þau bjóða upp á sannkallaða jólabaðstofustund með langspil, kertaljós og jólaskraut að vopni. Jafnvel munu slæðast inn frumsamin jólalög í anda þorskatríósins og auðvitað mun Gilsbakkaþula vera flutt.

Sveitin Gadus Morhua er skipuð:

Björk Níelsdóttur, söngur og langspil

Eyjólfi Eyjólfssyni, flauta, söngur og langspil

Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur, selló og söngur

Aðgangseyrir 2.500 kr.

Um tónleikaröðina Ex Libris:

Verið velkomin að hlýða á kammertónlist í hinum glæsilega bókasal Eddu í vetur.

Í tónleikaröðinni er annars vegar lögð áhersla á samtímatónlist og hins vegar á nýsköpun í flutningi eldri tónlistar, bæði þjóðlegrar tónlistar og barokks.

Allir tónleikarnir fara fram í bókasafni Eddu á laugardögum og hefjast klukkan 12 og standa í tæpa klukkustund.

Dagskrá vetrarins: https://arnastofnun.is/is/ex-libris-tonleikarod

Performers