Fáninn og þjóðin

Fáninn og þjóðin

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Wed Jan 27 2027 19:30

Hver er höfundur íslenska þjóðfánans? Af hverju varð Hvítbláinn ekki fyrir valinu? Hvernig hefur merking og staða fánans breyst frá því honum var fyrst flaggað?

Hver er höfundur íslenska þjóðfánans? Af hverju varð Hvítbláinn ekki fyrir valinu? Hvernig vildi Danakonungur hafa fánann? Og hvernig hefur merking og staða fánans breyst frá því honum var fyrst flaggað þann 1. desember 1918?

Saga íslenska fánans hefur lítið verið skrásett, þrátt fyrir að fáninn hafi gegnt mikilvægu hlutverki í fullveldis- og lýðveldisbaráttu Íslendinga í lok 19. og byrjun 20. aldar. Þótt fáninn sé eitt þekktasta tákn þjóðarinnar eru margir af merkilegustu hlutum sögu hans lítt þekktir.

Á námskeiðinu verður fjallað um ástæður þess að Íslendingar kröfðust eigin þjóðfána, hvaða aðrir fánar komu til greina og margar skemmtilegar sögur sem tengjast mótun íslensks menningarheims. Einnig verða skjaldarmerki og önnur þjóðartákn skoðuð. Að lokinni umfjöllun um uppruna fánans og þann eldmóð sem þar bjó að baki, verður staða hans í samtímanum skoðuð og rædd. Nota Íslendingar fánann mikið? Hefur afstaða okkar til fánans breyst á tímum aukinnar samfélagslegrar umræðu, þar sem ólíkir hópar hafa í auknum mæli vísað til hans í tengslum við sín sjónarmið?

Námskeiðið fer fram í formi lifandi frásagnar þar sem stuðst er við fjölbreytt myndefni, ljósmyndir, teikningar og heimildir frá ólíkum tímabilum. Í lok hvers námskeiðskvölds gefst þátttakendum kostur á að taka þátt í umræðum og bera fram spurningar.

Námskeiðið er hugsað fyrir alla áhugasama um íslenska menningarsögu og þjóðernistákn. Engar kröfur eru gerðar um þekkingu á efninu, aðeins áhuga á fánanum og menningarsögu Íslands. Efnið er sett fram til að hafa gaman af því og munu efnistök taka mið af því.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Sögu íslenska fánans og tilurð hans.
  • Hver eða hverjir stóðu að hönnun fánans.
  • Fánanefndina og hennar hlutverk. Rýnum í fundargerðarbók nefndarinnar.
  • Meðhöndlun fánans og mýturnar í kringum hann.
  • Skjaldarmerkið og önnur þjóðartákn Íslendinga.
  • Fánann í samtímanum og breytt viðhorf til þjóðartákna.

Ávinningur þinn:

  • Þú kynnist sögu íslenska fánans og þróun hans í tímans rás.
  • Þú fræðist um það fyrir hvað fáninn stóð í upphafi og hvað hann stendur fyrir í dag.
  • Þú fræðist um tengsl fánans við fullveldis- og lýðveldisbaráttu þjóðarinnar.
  • Þú færð innsýn í hvernig merking og notkun fánans hefur breyst í samtímanum.
  • Þú verður betur í stakk búin/n til að ræða sögu, merkingu og hlutverk íslenska fánans.