FANZONE - Sindri VS Valur

FANZONE - Sindri VS Valur

Pakkhus restaurant, Krosseyjarvegur 3, 780 Höfn í Hornafirði Directions

Fri Nov 06 2026 16:00

FAN ZONE Á PAKKHÚSINU!

SINDRI VS VALUR – KEYRUM ÞETTA Í GANG!

Það er stórleikur fram undan í Ice Lagoon höllinni og auðvitað ætlum við ekki að mæta köld til leiks!

Föstudaginn 6. nóvember breytum við Pakkhúsinu í félagsheimili og hitum upp fyrir viðureign Sindra og Vals í Bónusdeild karla!

Hamborgari á 2.000 kr.

Öl á 1.000 kr.

Gamlar Sindratreyjur til sölu!

Föstudagurinn 6. nóvember

Fan Zone hefst kl. 16:00

Pakkhúsið – Höfn

Það er ekkert betra en að byrja leikdaginn með góðum börger, köldum drykk og skemmtilegu fólki!

Verkefni kvöldsins hefst svo kl. 19:15 þegar Sindramenn taka á móti ósigruðum Valsmönnum í Ice Lagoon höllinni!

Okkar menn ætla sér fyrstu stigin í Bónusdeildinni og við ætlum að hjálpa þeim að ná þeim!

Mætum rauð og peppuð á Pakkhúsið og tökum stemninguna með okkur í höllina!

Valsmenn mæta ósigraðir – en þeir þurfa ekkert endilega að fara ósigraðir heim!

ÁFRAM SINDRI! ÁFRAM KÖRFUBOLTI!