Farsældardagur á Austurlandi
Austurbrú, Búðareyri 1, Reyðarfirði, Búðareyri 1, Reyðarfjörður Directions
Thu Nov 05 2026 11:00
Farsældardagur á Austurlandi 2026
Hvernig stuðlum við að aukinni farsæld barna og fjölskyldna á Austurlandi?
Farsældarráð á Austurlandi býður til Farsældardags fimmtudaginn 5. nóvember þar sem við komum saman, miðlum reynslu og ræðum hvernig við getum áfram styrkt samstarf og þjónustu í þágu barna og fjölskyldna á Austurlandi.
📅 5. nóvember 2026
🕚 Kl. 11:00–15:00
📍 Fróðleiksmolinn á Reyðarfirði (Húsnæði Austurbrúar)
🥣 Súpa í boði í hádeginu!
Á dagskrá verður meðal annars:
🔹 Ragný Þóra Guðjohnsen frá Háskóla Íslands kynnir niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar.
🔹 Páll Ólafsson, framkvæmdastjóri farsældar- og barnaverndarsviðs Barna- og fjölskyldustofu, fjallar um farsældarlögin og innleiðingu þeirra.
🔹 Reynsla af farsældarstarfi á Austurlandi: umræður um starf tengiliða og málstjóra, reynslu þeirra af vinnu með börnum og fjölskyldum og þau tækifæri og áskoranir sem fylgja nýju skipulagi.
🤝 Dagurinn er kjörið tækifæri til að efla samtal, deila þekkingu og styrkja tengsl þeirra sem vinna að farsæld barna og fjölskyldna á Austurlandi.
📣 Nánari dagskrá verður kynnt fljótlega!
Við hlökkum til að sjá ykkur! 💛