Farsældarþing: Það vaxa blóm fyrir vestan
Logn, restaurant & bar, Silfurtorg 2, 400 Ísafjörður Directions
Tue Dec 01 2026 12:30
Það vaxa blóm fyrir vestan – Farsældarþing Vestfjarða
Hvað gerir Vestfirði að góðum stað til að alast upp á og hvernig getum við látið enn fleira gott vaxa?
Farsældarþing Vestfjarða verður haldið þriðjudaginn 1. desember 2026 á Logni á Hótel Ísafirði, á sjálfan fullveldisdaginn, undir yfirskriftinni „Það vaxa blóm fyrir vestan“.
Skráning fer fram hér: https://www.vestfirdir.is/is/moya/formbuilder/index/index/farsaeldarthing-vestfjarda-thad-vaxa-blom-fyrir-vestan
Á þinginu beinum við sjónum að styrkleikum vestfirskra samfélaga í málefnum barna og fjölskyldna. Við deilum góðum dæmum, sækjum innblástur hvert til annars og horfum til þess hvernig við getum saman skapað börnum og ungmennum skilyrði til að blómstra.
Á þinginu verða Farsældarverðlaun Vestfjarða afhent, þar sem einstaklingur verður heiðraður fyrir framúrskarandi framlag í þágu barna og fjölskyldna á Vestfjörðum. Hægt Hægt er að senda inn tilnefningar til og með 13. nóvember n.k. hér: https://www.vestfirdir.is/is/moya/formbuilder/index/index/farsaeldarverdlaun-2026
Þinginu lýkur með undirritun sameiginlegra aðgerða Farsældarráðs Vestfjarða, sem marka næstu skref í samstarfi um farsæld barna og fjölskyldna í landshlutanum.
Staður: Logn á Hótel Ísafirði
Dagsetning: Þriðjudagur 1. desember 2026
Tími: Kl. 12:30–16:00. Hádegisverður hefst kl. 12:30 og formleg dagskrá kl. 13:15.
Nánari dagskrá verður birt fljótlega.
Taktu daginn frá og vertu með að hlúa að því sem vex fyrir vestan!