Ferðaþjónusta og áhrif ferðamennsku

Ferðaþjónusta og áhrif ferðamennsku

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Tue Jan 05 2027 17:00

Meginmarkmið námskeiðsins er að veita innsýn í þróun ferðamennsku og áhrif hennar á umhverfi, samfélag og efnahag, bæði á heimsvísu og á Íslandi.

Þetta námskeið er hluti af leiðsögunámi en opið öllum áhugasömum.

Örnám í samstarfi við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands.

Hægt er að taka námskeiðið með tvennum hætti:

  1. Án námsmats – fyrir þau sem vilja sækja námskeiðið sér til fróðleiks og skemmtunar.
  2. Með námsmati – fyrir þau sem vilja fá staðfest námskeið með námsárangri og geta þá nýtt það inn í leiðsögunám síðar. Þau sem hyggjast taka námskeiðið með námsmati þurfa að uppfylla inntökuskilyrði leiðsögunáms. Viðkomandi þurfa að hafa samband við Endurmenntun með því að senda tölvupóst á netfangið nemehi@hi.is.

Meginmarkmið námskeiðsins er að veita innsýn í þróun ferðamennsku og áhrif hennar á umhverfi, samfélag og efnahag, bæði á heimsvísu og á Íslandi. Fjallað er um helstu kenningar, lykilhugtök og hegðun ferðamanna, sem og umhverfisleg, samfélagsleg og efnahagsleg áhrif, þolmörk og sjálfbæra þróun. Einnig er tekið á náttúrusiðfræði, ábyrgri umgengni og grunnatriðum í rekstri og markaðssetningu ferðaþjónustu, þar á meðal hlutverki samfélagsmiðla.

Hæfniviðmið:

Við lok námskeiðsins getur nemandi:

  • lýst þróun ferðamennsku og helstu hugtökum ferðamálafræða.
  • útskýrt hegðun og væntingar ferðamanna í tengslum við upplifun og áfangastaði.
  • lýst helstu áhrifum ferðamennsku á umhverfi, samfélag og efnahag.
  • útskýrt hugtakið þolmörk áfangastaða og nefnt einfaldar aðgerðir sem styðja við sjálfbæra þróun.
  • notað hugtök í náttúrusiðfræði til að lýsa umgengni og ábyrgð í ferðaþjónustu.
  • útskýrt grunnatriði í stofnun, rekstri og markaðssetningu ferðaþjónustufyrirtækja.

Námskeiðið er skipulagt sem fjarnám með staðlotum. Kennt er á íslensku og námsmat fer einnig fram á íslensku. Í upphafi hvers námskeiðs er fjarfundur með kennara og upptökur af fyrirlestrum eru í kjölfarið gerðar aðgengilegar á kennslusvæði.

Staðlota í námskeiðinu er 30. janúar, kl. 9:00 – 16:00.