Frá þátttöku til samsköpunar
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Mon Jan 25 2027 15:00
Er nóg að hlusta á fólk eða þarf það einnig að hafa áhrif?
Á þessari vinnustofu skoðum við hvernig samkennd getur orðið afl til þátttöku, samsköpunar og inngildingar. Samkennd felur ekki aðeins í sér skilning á öðrum heldur einnig virðingu fyrir sjálfræði, ábyrgð og getu fólks til að taka virkan þátt í eigin námi, lífi og nærumhverfi sem virkir þátttakendur í lýðræðislegu samfélagi.
Á þessari þriggja klukkustunda vinnustofu er fjallað um hvernig samkennd getur stuðlað að inngildandi og þátttökumiðuðu námsumhverfi þar sem fjölbreytt reynsla, þekking og sjónarmið fá að njóta sín og hafa áhrif.Byggt er á rannsóknum á félagslegri og gagnrýninni samkennd, þátttöku og reynsluþekkingu. Þátttakendur skoða hvernig vald, norm og skipulag geta ýmist stutt eða hindrað þátttöku og kynnast hagnýtum aðferðum til að efla inngildingu, samsköpun og virka þátttöku í starfi.
Vinnustofan byggir á þeirri sýn að menntun gegni mikilvægu hlutverki í að efla lýðræðislega þátttöku, sjálfræði og ábyrgð einstaklinga í samfélaginu.Vinnustofan sameinar stutt fræðileg innlegg, umræður, sjálfsskoðun og verkefnavinnu þar sem þátttakendur vinna með raunverulegar áskoranir úr eigin starfi.
Námskeiðið er ætlað kennurum, leiðbeinendum, skólastjórnendum, námsráðgjöfum, starfsfólki skóla, æskulýðsfulltrúum og öðrum sem vinna með ungmennum eða hópa og vilja efla þátttöku, inngildingu og virka þátttöku og lýðræðislega borgaravitund í námi og samfélagi.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Félagslega og gagnrýna samkennd í menntun, fræðslu og æskulýðsstarfi.
- Tengsl samkenndar, valds, ábyrgðar og þátttöku.
- Hvernig norm, skipulag og stofnanir geta ýmist stutt eða hindrað inngildingu.
- Reynsluþekkingu, samsköpun og lýðræðislega þátttöku í námsumhverfi.
- Hagnýtar aðferðir til að skapa örugg, inngildandi og þátttökumiðuð lærdómssamfélög.
Ávinningur þinn:
- Dýpkar skilning á samkennd sem verkfæri til þátttöku og inngildingar í námi.
- Greinir hvernig vald, ábyrgð og þátttaka birtast í eigin starfsháttum.
- Lærir aðferðir til að efla áhrif, lýðræðislega þátttöku og sjálfræði ólíkra hópa.
- Fær hagnýt verkfæri til að vinna með reynsluþekkingu og samsköpun.
- Þróar hugmyndir að inngildandi námsumhverfi sem hægt er að innleiða í eigin starfi.
Aðrar upplýsingar
Námskeiðið byggir á virkri þátttöku. Mælt er með að þátttakendur komi með dæmi úr eigin starfi sem þeir vilja skoða í ljósi samkenndar og inngildingar. Ekki er þörf á sérstökum undirbúningi eða kennslugögnum.