Fræðsla í Vestmanneyjum

Fræðsla í Vestmanneyjum

Akóges, Hilmisgata 15, 900 Vestmannaeyjar Directions

Tue 01.09.2026 18:00

Við höldum reglulega fræðsluerindi víðsvegar um landið, þar sem við kynnum starfsemi samtakanna og veitum fræðslu um heilabilun og samskipti. Eitt af okkar meginmarkmiðum er nefnilega að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir.

Nú er förinni heitið til Vestmannaeyja þar sem við höldum m.a. opið fræðsluerindi.

Þeir sem mæta öðlast betri skilning á breyttum aðstæðum og fá hugmyndir að bættum samskiptum og samveru. Þá er umræða um heilabilun einnig mikilvægur þáttur til að minnka fordóma í samfélaginu.

⏰HVENÆR

Þri. 1. september kl. 18:00

🏠HVAR

Akóges salurinn, Hilmisgötu 15

🗣HVERJIR

Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi samtakanna mæta.

👥FYRIR HVERJA

Fyrirlesturinn er opinn öllum, einstaklingum með heilabilun, aðstandendum, fagfólki og öðrum áhugasömum.

Performers