Fræðslufundur ÖLD: Hrumleikinn er ástæðan, ekki hindrunin
Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions
Fri Nov 20 2026 12:00
Hrumleikinn er ástæðan, ekki hindrunin: Þung styrktarþjálfun fyrir sjúklinga á öldrunardeildum.
📅 Föstudagur 20. nóvember 2026
🕛 Kl. 12:00-13:00
💻 Netfundur í beinu streymi (Teams)
https://teams.microsoft.com/meet/3110185496007209?p=YWZjO10m7A0NCzjRrp
Arnar Hafsteinsson er fyrrverandi einka- og styrktarþjálfari sem starfar í dag sem klínískur íþróttafræðingur á Landspítala. Hann er með MSc í heilbrigðisvísindum og er þessa dagana doktorsnemi við Háskóla Íslands á heilbrigðisvísindasviði. Rannsóknir hans á Landspítala (Landakoti) snúa að því að koma í veg fyrir vöðvarýrnun og styrktartap hjá rúmliggjandi öldrunarsjúklingum með markvissri styrktarþjálfun í rúmi sjúklinga og snýst verkefnið um að samþætta þekkingu þjálffræðivísinda beint inn í heilbrigðiskerfið. Arnar er jafnframt frumkvöðull og stofnandi sprotafyrirtækisins Isfactor, sem þróar og hannar nýungar í endurhæfingartækjum til að mæta þörfum þessara viðkvæmustu sjúklinga, auk þess að bæta vinnuvistfræði heilbrigðisstarfsfólks.
Fundurinn er öllum opinn og ekki þarf að skrá sig.
🔗 Nánari upplýsingar www.oldrun.is