Fræsöfnun -Auður allt árið

Fræsöfnun -Auður allt árið

Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions

Thu 10.09.2026 17:00

vefnámskeið

Námskeið í fræsöfnun trjáa, runna og garðplantna

Langar þig að læra að safna eigin fræi og rækta nýtt líf úr garðinum og náttúrunni?

Á þessu fróðlega og notalega námskeiði verður farið yfir hvernig safna má fræi af trjám, runnum og fjölærum garðplöntum — og hvernig rétt meðhöndlun eykur líkur á góðri spírun og heilbrigðum plöntum.

Farið verður yfir:

• hvenær best er að safna fræi af mismunandi tegundum að hausti og yfir veturinn

• hvernig þekkja má þroskað fræ

• hreinsun og flokkun fræs

• geymslu fræs fram að vori

• kaldmeðhöndlun og vetrarsáningu

• undirbúning fyrir sáningu og spírun

Námskeiðið hentar öllum sem hafa áhuga á ræktun, garðyrkju og sjálfbærni — hvort sem þú ert byrjandi eða með reynslu.

Komdu og lærðu að varðveita og fjölga plöntunum sem þér þykir vænt um 🌿

Leiðbeinandi: Auður I. Ottesen garðyrkjufræðingur

Hvar og hvenær: 10.september 17:00-18:30

Verð: 16.900 kr*

*ATH: Stéttarfélögin Aldan, Samstaða, Kjölur, Sameyki, Verslunarmannafélag Skagafjarðar og stéttarfélög sem eru aðilar að Iðunni greiða námskeiðsgjaldið að fullu fyrir sína félagsmenn. (Athugið að þetta á við greiðandi félagsmenn í flestum tilfellum og hefur ekki áhrif á persónulegan námsstyrk félagsmanna) Athugið að námskeiðin eru öllum opin og minnum við aðra en félagsmenn þessara félaga á að kanna rétt sinn hjá sínu stéttarfélagi