Fyrsta Prjónakvöld haustsins

Fyrsta Prjónakvöld haustsins

Vínstofa Friðheima, Skólabraut 6, 806 Reykholt Directions

Thu 03.09.2026 20:00

Fyrsta Prjónakvöld haustsins verður fimmtudaginn 3. september kl. 20! 🧶

Eftir gott sumar er haustið farið að nálgast, réttirnar framundan og lopapeysan smám saman farin að kalla á mann aftur – svo það gæti varla verið meira viðeigandi að hefja prjónaveturinn á heimsókn og innblæstri frá Rakel, sem stendur að lopamunstur.is.

Þar gefur hún út einfaldar og byrjendavænar lopapeysuuppskriftir. Rakel hefur prjónað frá árinu 2006 og ólst upp í sveit á Suðurlandi, þar sem áhuginn á íslenskri náttúru, útivist og prjóni kviknaði snemma.

Árið 2023 byrjaði hún að hanna sín eigin munstur og það sem upphaflega var leið til að finna sér eitthvað skemmtilegt að prjóna þróaðist fljótt yfir í eigin hönnun og útgáfu uppskrifta. Innblásturinn sækir hún mikið í náttúruna – enda segir hún lopapeysuna vera hina fullkomnu útivistarflík. Og hver veit það betur en Íslendingur þegar haustið, fjöllin og réttirnar fara að kalla!

Meðfram fullri vinnu heldur Rakel áfram að hanna og prjóna og heldur einnig úti prjónahlaðvarpinu Lykkjufallið sem margir kannast við og hlusta á við prjónaskapinn.

Endilega bókið pláss á fridheimar@fridheimar.is! Tilvalið að fá sér gott í gogginn (eldhúsið opið til 21 og matseðillinn er girnilegur!)

Við hlökkum til að heyra Rakel segja frá sinni prjónavegferð, hönnuninni og hugmyndunum á bak við lopamunstur.is – og vonandi fáum við líka að sjá og klappa nokkrum lopapeysum!