Gæðastjórnunarkerfi (ISO 9001) - uppbygging og innleiðing

Gæðastjórnunarkerfi (ISO 9001) - uppbygging og innleiðing

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Tue Feb 09 2027 09:00

Gerðu gæðastjórnun að styrkleika í rekstrinum með hagnýtri innsýn í staðalinn ISO 9001, innleiðingu hans og hvernig hann snertir daglega starfsemi.

Í samstarfi við Staðlaráð Íslands

Gæðastjórnun eykur á ánægju viðskiptavina, sparar tíma, dregur úr mistökum og sóun og hefur þannig jákvæð áhrif á rekstur og stjórnun. Á námskeiðinu verður farið í uppbyggingu, markmið og innleiðingu gæðastjórnunarkerfa og hvernig þau snerta daglega starfsemi.

Alþjóðlegi staðallinn ISO 9001:2026, Gæðastjórnunarkerfi - kröfur verður lagður til grundvallar á námskeiðinu. Innihald staðalsins er hryggjarstykkið í gæðakerfum í alls konar fyrirtækjum í fjölbreyttri starfsemi um allan heim. Hann er nokkurs konar ættmóðir annarra ISO staðla, svo sem um jafnlaunakerfi og umhverfis- og öryggismál. Fjallað verður um gæðastjórnun, hvaða máli hún skiptir og hvernig hægt er að setja upp gæðastjórnunarkerfi sem hentar fyrirtækinu og starfsemi þess.

Fyrir alla áhugasama um gæðastjórnun en sérstaklega hagnýtt fyrir alla stjórnendur sem þurfa gjarna að styðja við innleiðingu og notkun á gæðastjórnunarkerfum svo að vel takist til og að gæðastjórnun skili tilætluðum árangri. Hentar einnig sérfræðingum sem vinna með jafnlaunakerfi, öryggi á vinnustöðum, upplýsingaöryggi eða annað sem byggir á ISO stöðlum.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Hugmyndafræði gæðastjórnunar.
  • Innihald ISO 9001.
  • Uppbyggingu gæðakerfis, innleiðingu og viðhorf.
  • Ferlanálgun og tilgang hennar.
  • Skjöl og skráningar.
  • Rekjanleika.

Ávinningur þinn:

  • Skilja hvernig gæðastjórnun skilar árangri.
  • Öðlast hvata til að taka upp gæðastjórnun.
  • Þekking á ISO 9001.
  • Fá praktísk ráð til að koma upp gæðastjórnunarkerfi sem hentar þínu fyrirtæki.