Ganga í Fossvogsgarði - Listaverk og minnisvarðar
Fossvogskirkjugarður, Vesturhlíð 8, 105 Reykjavík Directions
Thu Sep 10 2026 17:30
Listaverka- og minnisvarðaganga í Fossvogsgarði undir leiðsögn Bryndísar Björgvinsdóttur starfsmanns garðsins.
Í göngunni verður lögð sérstök áhersla á að skoða þá minnisvarða og þau listaverk sem prýða Fossvogsgarð. Einnig verður staldrað við áhugaverð tré og annan gróður sem skoða má út frá sögulegu samhengi.
Komið er saman við Fossvogskirkju.
Áætlaður tími frá 17:30-19:00. Hámarksfjöldi 45 manns.
Nauðsynlegt er að skrá sig í gönguna. Skráning fer fram hér: https://www.kirkjugardar.is/thjonusta/ganga/lisaverk-og-minnisvardar-i-fossvogsgardi
Viðburðurinn er hluti af menningarminjadögum Evrópu 2026.