Glæpasaga: Frá hugmynd til handrits
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Tue Jan 26 2027 20:00
Langar þig að skrifa spennandi glæpasögu? Á þessu námskeiði lærir þú hvernig góð spennusaga verður til, frá fyrstu hugmynd að handriti.
Þátttakendur fá hagnýta leiðsögn í ritun spennu- og glæpasagna. Fjallað verður um hugmyndavinnu, persónusköpun, uppbyggingu fléttu og spennu, sögusvið og samtöl, auk þess sem skoðað verður hvað gerir góða glæpasögu eftirminnilega. Kennarar deila reynslu sinni af ritun og útgáfu glæpasagna og við fáum góðan gest. Einnig verður fjallað um hlutverk ritstjórnar í sköpunarferlinu og hvernig höfundar og ritstjórar vinna saman að því að styrkja texta.
Námskeiðið fer fram í formi spjalls og æfinga/verkefna. Þátttakendur vinna á eigin fartölvu í tímum og eru hvattir til að vinna áfram með eigin skrif milli tíma, þótt ekki sé um formlega heimavinnu að ræða. Gott er að hafa lesið bókina Lokar augum blám eftir Margréti Höskuldsdóttur áður en námskeiðið hefst þar sem vitnað verður í hana á námskeiðinu.
Námskeiðið hentar bæði þeim sem eru með hugmynd að glæpasögu og þeim sem þegar eru komin af stað með skrif og vilja fá verkfæri og innblástur til að þróa verkið áfram.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Ferlið; frá fyrstu hugmynd að fullbúnu handriti.
- Hugmyndavinnu; hvernig vinnum við úr þeim hugmyndum sem kvikna?
- Persónusköpun; hvernig skapa má trúverðugar persónur og gefa þeim dýpt. Þarf lesendum að líka við þær?
- Byggingu og framvindu; uppbyggingu spennu og að finna rétta jafnvægið. Hvenær hefur glæpasaga flettiorku og hvenær hefur hún jafnan bruna?
- Sögusvið; hvaða vægi hefur það í skáldsögum og hvernig sögusviðið getur orðið virkur hluti af sögunni.
- Hugtök sem tengjast ritun glæpasagna; vísbendingar, rannsóknarferlið, afvegaleiðingar, hvernig halda má aftur af upplýsingum án þess að svindla á lesandanum.
- Vinnulag og venjur ritstjóra og höfundar; hvernig góð samvinna getur skipt sköpum í ferlinu.
- Glæpasagan sem form; hvað þarf til að sagan verði eftirminnileg.
Ávinningur þinn:
- Þú færð yfirsýn yfir hvernig glæpasaga er byggð upp.
- Þú fræðist um hvaða þætti þarf til að skapa spennu og trúverðugleika.
- Þú lærir að þróa eigin hugmyndir, móta persónur og söguþráð.
- Þú lærir að styrkja framvindu sögunnar og spennu.
- Þú færð innsýn í ritferlið, endurskrif og samstarf við ritstjóra.
- Þú færð skýrari sýn á eigin sögu og nýjar hugmyndir til þess að halda áfram.
- Þú færð hagnýt verkfæri sem þú getur nýtt við eigin skrif.