Glansverkstæði á Akureyri

Glansverkstæði á Akureyri

Hús Rauða krossins, Viðjulundur 2, 600 Akureyri Directions

Sat Nov 21 2026 11:00

Hvern hefur ekki langað til að eiga skó í æpandi fallegum lit?

Á þessari 3-4 klukkustunda vinnustofu lærirðu að að umbreyta skóm úr leðri, gervileðri eða plasti í litríkar og glansandi gersemar með málmfólíum (imitation gold foils).

Við hverju máttu búast?

Litríku handverki: Þú lærir raunveruleg handbrögð við skapandi og getur valið úr 17 mismunandi litum eða sett saman þína eigin litasamsetningu

Létt andrúmsloft: Við leggjum áherslu á vandað handverk, gott spjall og þægilega samveru.

Allt innifalið: Allt efni á staðnum er innifalið. Að kveldi loknu færðu viðgerðarpakka með þér heim ef þarf að dytta að og til að setja verndandi áferð yfir.

Veitingar: Boðið er upp á vatn og sódavatn, en þátttakendum er velkomið að koma með aðrar veigar með sér.

Fá pláss – lítill hópur: Að lágmarki 6 og að hámarki 12 þátttakendur til að tryggja góða leiðsögn.

Skráning hér: https://ognicelandic.is/product/glansverkstaedi-akureyri/

Nánari upplýsingar:

Staðsetning: Viðjulundur 2 (litli salur Rauða krossins, 2. hæð), Akureyri

Dagsetning: 21. nóvember, 2026.

Tími: Kl. 11 – 14 (getur teygst aðeins úr ef fjörið er mikið).

Hvað þarf að taka með? Eitt par af skóm (amk. að hluta til úr leðri/gervileðri/plasti). Ég mæli með að kíkja við í verslun Rauðakrossins, Hertex eða loppuverlanir ef þig vantar skó. Ef þú hvorki átt né finnur réttu skóna er líka hægt að koma með einfalt veski.

Mættu með skó sem hættir eru að njóta sín og farðu heim eftir gleðilega kvöldstund með glansandi gersemar

Performers