Greiðslutækni í seilingarfjarlægð: Hvað er að breytast og hvað kemur næst?

Greiðslutækni í seilingarfjarlægð: Hvað er að breytast og hvað kemur næst?

Vinnustofa Kjarval - Fantasía, Austurstræti 12, 101 Reykjavík Directions

Mon Oct 05 2026 17:00

Greiðslur og greiðslutækni þróast ört. Ný tækni, nýir greiðslumátar og nýjar leiðir til að færa og nota peninga eru þegar farnir að móta greiðsluumhverfið og þróunin heldur áfram.

Á þessum fyrsta opna fundi greiðslutæknihóps Reykjavík Fintech fáum við þrjú ólík sjónarhorn á þróunina í greiðslutækni.


Gísli Kristjánsson hjá Monerium ræðir um sinn heim stafræns fjár og rafeyristóka, hvað er að gerast þar í dag og hvaða tækifæri og breytingar eru fram undan.


Bjarni Gaukur Sigurðsson hjá Blikk ræðir um A2A og greiðslur beint af bankareikningi, þróunina á íslenskum greiðslumarkaði og hvað er fram undan í þeirra heimi.


Ragnar Árnason hjá YAY kemur með annað sjónarhorn á greiðslur og verðmæti; stafrænar gjafir, gjafakort og lausnir í kringum þau og hvernig sá heimur er að þróast.


Jónína Gunnarsdóttir, sem leiðir greiðslutæknihóp Reykjavík Fintech, opnar fundinn og fer jafnframt yfir hvernig starfi hópsins verður háttað í vetur.


Markmiðið er að fá innsýn í ólíka hluta greiðsluheimsins, kynnast lausnum sem eru þegar orðnar að veruleika og velta fyrir okkur því sem er rétt handan við hornið