Guðrún Eggertsdóttir á Krossgötum, fjallar um afa sinn, Jónas frá Hriflu
Neskirkja, Hagatorg, 107 Reykjavík Directions
Mon Oct 05 2026 13:00
Guðrún er yngsta barnabarn þessa litríka og umdeilda stjórnmálamanns. Hún fjallar um stormasamt lífshlaup afa síns, hugsjónirnar og ríkulegan afrakstur. Sjónarhorn hennar er annað en við höfum aðgengi að í ritum og umfjöllun fræðimanna sem hafa fjallað um Hriflu-Jónas.
Jónas tengist sögu Neskirkju. Þegar teikningar að kirkjunni voru birtar í byrjun 5. áratugarins, þá beitti Jónas sér af hörku gegn því að byggingin yrði reist. Hann líkti útlitinu við samansafn af skúrum sem hrúgað væri hver upp á annan!
Alexander Jóhannesson háskólarektor og formaður byggingarnefndar sendi loks teikningarnar til Eero Saarinen arkitekts við Columbia háskólann í Bandaríkjunum sem gaf útliti kirkjunnar sín bestu meðmæli. Við það lægði öldurnar.